|
miðvikudagur, 19 maí 2010 |
 Lögð hefur verið fram á alþingi tillaga til þingsályktunar um fjögurra ára samgönguáætlun 2009-2012. Áætlunin inniber áætlun til fjögurra ára í flugmálum, siglingamálum og vegamálum. Þá inniber áætlunin fimm meginmarkmið, en þau eru; greiðari samgöngur, hagkvæmni í uppbyggingu ,umhverfisleg sjálfbærni, , öryggi og jákvæð byggðaþróun. Hér verður sjónum beint að áætlun í vegamálum og hlutskipti Norðurlands vestra innan þess málaflokks. Þegar skoðuð eru framlög til vegamála í Skagafirði og Húnavatnssýslum kemur í ljós að fjögur verkefni fá fjárveitingu á árinu 2010 og eru það einu framlögin til vegamála á Norðurlandi vestra á eftirlifandi gildistíma áætlunarinnar. Þær fjárveitingar miða allar við að ljúka framkvæmdum sem í gangi voru á árinu 2009 en upphæðirnar nema einmitt mismuni af kostnaðaráætlun og fjárveitinga til viðkomandi verkefna á árinu 2009. Um er að ræða eftirfarandi verkefni. |
|
Lesa meira...
|
|
|
miðvikudagur, 10 mars 2010 |
 “Allt sem andardrátt hefur, lofi Drottin” Þann 5. mars var alþjóðlegur bænadagur kvenna haldinn hátíðlegur á Melstað í Miðfirði í fimmta sinn.
|
|
Lesa meira...
|
|
|
föstudagur, 26 febrúar 2010 |
 afmælisbarnið Ný afstaðið er 75 ára afmæli Bangsa, Björns Þ. Sigurðssonar, en það var 18. febrúar sl. Sá siður hefur haldist í tugi ára að vinir hans heimsæki hann og gleðjist með honum á afmælisdaginn. Af því tilefni er vert að rifja upp afmælisdag í Nausti fyrir tæpum 30 árum.
|
|
Lesa meira...
|
|
|
föstudagur, 09 október 2009 |
|
Eftir gott og milt sumar hér á Vatnsnesi er nú farið að hausta og má segja kannski full snemmt að fá svona kulda,rok og snjó í lok september eins og gerðist en vonandi mildast nú aftur eins og undanfarin 2 ár.Vorið var frekar kalt en svo kom langur, góður og þurr kafli sem stóð má segja frá miðjum júní fram í ágúst en vætusamt hefur verið eftir það.
|
|
Lesa meira...
|
|
|
föstudagur, 07 ágúst 2009 |
|
Hljómsveitin Groundfloor spilar sína aðra tónleika í Salzburg á þessu sumri í kvöld, föstudaginn sjöunda ágúst. Þessir tónleikar eru fyrsti liður í örstuttu tónleikaferðalagi sveitarinnar sem ber yfirskriftina "endurreisn Íslands tour 2009" eða á ensku "regaining Iceland´s dignity tour 2009" og leggja hljómsveitarmeðlimir sig hvarvetna í lima við að bera út gleði, bjartsynis og jákvænisfréttir af landinu kalda á ferðum sínum. Tónleikarnir í kvöld eru í miðborg Salzburgar og hefur verið uppselt í um 2 vikur, sem sýnir klárlega áhuga borgarbúa á hljómsveitnni og eru meðlimir Groundfloor afar ánægðir með þesar móttökur. Hljómsveitin hefur verið að vinna í nýju efni og endar þessa stuttu tónleikarferð sína í hljóðveri hér í Austurríki í næstu viku til upptöku á efni fyrir nýja plötu sem áætlað er að komi út seint á næsta ári, ef allt gengur að óskum.
|
|
Lesa meira...
|
|
|
miðvikudagur, 29 júlí 2009 |
|
Stjórn FÁÍA sér um alla skipulagningu á þessum dönsum fyrir landsmótin ásamt ýmsu öðru og er þeirra hjálp alveg ómetanleg og dásamlegt að fá að vera með þessum hóp.
Stella og Marteinn fóru snemma af stað á föstudag til að fá húsnæðið sem var búið að panta. Dansararnir lögðu af stað eftir hádegismatinn og komu til Akureyrar um kl 17, þau skoðuðu húsnæðið og fengu kaffisopa síðan kvöldmat og svo var arkað af stað á setningarathöfnina.
|
|
Lesa meira...
|
|
|
þriðjudagur, 14 júlí 2009 |
|
Það hefur nú margt gerst síðan kíkt var á unglingavinnuna síðast. Þau hafa staðið sig einstaklega vel og komið mörgum hlutum í verk og náð að klára þetta allt.
Þau hafa hreinsað alla göngustígana á Bangsatúni og litla stíginn á milli húsanna í Fífusundinu, þar sem þau reyttu illgresið af stígunum og rökuðu síðan mölina svo nú lítur þetta miklu betur út. Einnig hafa þau verið dugleg í stéttahreinsun, en stéttirnar allt í kringum Félagsheimilið eru nú miklu betur útlítandi. Svo heimsóttum við fólkið í Nestúni og gerðum fínt í kringum hjá þeim og því næst var stéttin hjá kirkjunni hreinsuð.
|
|
Lesa meira...
|
|
|
|