Norðanátt.is

Senda efni

Viltu senda okkur efni á vefinn? Pistil, kveðju, viðtal, myndir...
Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það
 
  
Sparisjóðurinn Hvammstanga
Fékk boð um að keppa í Crossfit Rafpóstur
laugardagur, 22 maí 2010
Lesa meira...
Nú í byrjun maí fór fram Evrópumótið í Crossfit í Halmstad í Svíþjóð. Hjördís Ósk Óskarsdóttir var meðal keppenda á mótinu og Norðanátt tók hana rafrænu tali og forvitnaðist aðeins um Crossfit og hennar hagi.
Lesa meira...
 
Úskrifaðist með hæstu einkunn frá Háskólanum í Kaupmannahöfn Rafpóstur
laugardagur, 21 nóvember 2009

Lesa meira...
Jón Rafnar Benjamínsson
Jón Rafnar Benjamínsson frá Þorfinnsstöðum í Vesturhópi er ný útskrifaður sem landslagsarkitekt frá Háskólanum í Kaupmannahöfn. Jón Rafnar útskrifaðist með hæstu einkunn og hefur verið að vinna að ýmsum verkefnum síðan. Til dæmis hefur hann komið að hönnun fjölskyldugarðs við Grettisból á Laugarbakka.


Þú ert núna búsettur í Kaupmannahöfn og hefur verið við nám. Er þetta búið að vera góður tími?

Þetta er búið að vera alveg frábært, mjög annasamur og viðburðaríkur tími. Hér í Kaupmannahöfn er hægt að fara allra sinna ferða með hatt og axlabönd á hjóli með litlu fjölskylduna í kassanum án þess að nokkrum þyki það nokkuð athugavert. Þetta mun ég innleiða á Hvammstangabrautina, án vafa:)


Lesa meira...
 
Séra Sigurður hefur kvatt Rafpóstur
þriðjudagur, 03 nóvember 2009

Lesa meira...Sunnudaginn 25. október s.l. messaði séra Sigurður Grétar Sigurðsson í síðasta sinnið í Breiðabólstaðarprestakalli, þar sem hann mun nú halda til starfa sem sóknarprestur í Útskálaprestakalli. Eftir messuna í Hvammstangakirkju var haldið í Félagsheimili Hvammstanga þar sem sóknarnefndir prestakallsins og kirkjukór Hvammstangakirkju buðu uppá veitingar. Smellið hér til að skoða myndir frá þessu öllu saman.

Norðanátt hitti séra Sigurð að tali og fékk hann til að líta aðeins yfir farinn veg.

Lesa meira...
 
"Upp á síðkastið hafa leikmenn aðallega verið að sóla sig og finna leiðir til að sigra í næsta leik" Rafpóstur
mánudagur, 13 júlí 2009
Norðanátt hafði spurnir af því að sunnan heiða væri knattspyrnufélag, með „heimamönnum“ Húnaþings vestra innanborðs, með mikla drauma. Var því rokið af stað og haft samband við félagið, sem kallar sig „Knattspyrnufélagið Heiða í Dal, og forvitnast um þetta félag sem er á allra vörum.
 
 
Lesa meira...
 
Hinn víðfrægi trommuleikari Rafpóstur
laugardagur, 21 mars 2009
Hver er það sem hefur verið í óteljandi hljómsveitum, hjálpað til við uppsetningu óteljandi atburða og á orðið óteljandi börn...nei, reyndar eru börnin bara 3 og maðurinn er Sigurvald Ívar Helgason, sonur Helga í Skjanna og Dóru í Rebekku. Sigurvald er fæddur og uppalinn á Hvammstanga og flutti þaðan síðast í ársbyrjun 2005 og býr núna í Reykjavík með unnustu sinni Guðfinnu Jónsdóttur og syni þeirra. Silli er  trommuleikari af lífi og sál og hefur starfað sem hljóðmaður undanfarin ár. Það lá beinast við að byrja á því að biðja hann um að telja upp hversu mörgum hljómsveitum hann hefur eiginlega verið í:



Lesa meira...
 
Forvitnast um Elínu R Líndal Rafpóstur
laugardagur, 14 mars 2009
Lesa meira...
Elín Rannveig Líndal
Nú á dögunum forvitnaðist Norðanátt um Elínu Rannveigu Líndal. Hún gegnir stöðu framkvæmdarstjóra Forsvar ehf og býr í Lækjarmóti ásamt manni sínum Þóri Ísólfssyni. Elín er framsóknarkona í öllum skilningi þess orðs en nú skulum við sjá hvað Elínu finnst um hina hversdagslegu hluti.
Lesa meira...
 
Viðtal við Eydísi Ósk Indriðadóttur Rafpóstur
sunnudagur, 08 mars 2009

Lesa meira...
Eydís Ósk Indriðadóttir
Okkur barst til eyrna að það væri einhver sem þeyttist á milli Húnaþings vestra og Hvanneyrar með barn í einni og skólabækur í hinni...okkur var eiginlega ekki annað fært en að rannsaka það mál frekar. Við yfirheyrðum marga og eftir nákvæma yfirferð sönnunargagna komumst við að því að viðkomandi er ung og kraftmikil kona sem kennd er við Grafarkot oft á tíðum og kallar sko ekki allt ömmu sína. Við spurðum hana úr:

 
Ég heiti semsagt Eydís Ósk Indriðadóttir og er 26 ára einstæð móðir.  Ég varð stúdent vorið 2002 frá FNV á Sauðárkróki. Ég kláraði framhaldsskólann á 3 og hálfu ári þar sem að haustið 2000 tók ég eina önn í frí og flutti til Bandaríkjanna í 3 mánuði. Haustið 2002 fór ég til Spánar í 3 mánuði að læra spænsku. Svo var ég bara að vinna þar til haustið 2007 en þá byrjaði ég í LBHÍ hérna á Hvanneyri.

Lesa meira...
 
"Ég hef verið einstaklega heppinn" Rafpóstur
miðvikudagur, 21 janúar 2009
Jörundur Ragnarsson er eflaust mörgum kunnur en hann leikur í þáttum sem notið hafa gríðarlegra vinsælda. Þetta eru þættirnir Næturvaktin og Dagvaktin, en þar leikur hann Daníel. Kannski vita ekki jafn margir að Jörundur bjó hér á svæðinu þegar hann var yngri. Norðanátt sendi Jörundi línu og spurði aðeins útí það og forvitnaðist um hans hagi.

Lesa meira...
 
<< Byrja < Fyrri 1 2 Næsta > Endir >>

Úrslit 1 - 16 af 18

Leit

 

Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það   
 
  
 

Dagatal

september 2010
þrmifilasu
0102030405
06070809101112
13141516171819
20212223242526
27282930
Play casino online games