|
þriðjudagur, 19 janúar 2010 |
 Þórbergur Gleðibankinn kynnir: Kvöldstund með Þórbergi, í Bjarmanesi á Skagaströnd, miðvikudagskvöldið 20. janúar, kl. 20:30. Tveir góðir flytja dagskrá um Þórberg Þórðarson rithöfund sem er óumdeilanlega einn af helstu rithöfundum þjóðarinnar.
 Pétur • Pétur Gunnarsson, rithöfundur, hefur af miklum hagleik skrifað þroskasögu Þórbergs og hann segir frá þessum snillingi íslenskra bókmennta. • Jón Hjartarson, leikari og rithöfundur. Hann hefur bæði leikið Þorberg og ritað leikgerð um sögur hans.  Jón Hjartarson Kvöldstund með Þórbergi verður full af vangaveltum um lífið og tilveruna, einlæg og fyndin eins og hann kom lesendum sínum fyrir sjónir. Dagskráin er í boði Minningarsjóðsins um hjónin frá Garði og Vindhæli. |