Norðanátt.is

Senda efni

Viltu senda okkur efni á vefinn? Pistil, kveðju, viðtal, myndir...
Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það
 
  
Sparisjóðurinn Hvammstanga
Nóg að gera hjá Félagi eldri borgara Rafpóstur
föstudagur, 22 janúar 2010
Félag Eldri Borgara er mjög virkur félagsskapur og hefur í ýmsu að snúast. Geta allir sem eru orðnir 60 ára gengið í félagið. Margar verslanir og fyrirtæki allt í kringum landið gefa félögum eldri borgara góðan afslátt gegn framvísun félagaskírteinis og er sjálfsagt fyrir félagana að nýta sér það. 

Dagana 28 og 29 júní verður farið í tveggja daga ferð til Akureyrar og Hríseyjar. Á leiðinni norður verður stoppað í Varmahlíð. Á Akureyri fer leiðsögumaður með hópinn í skoðunarferð og einnig verða heimsótt eitt til tvö söfn eða fyrirtæki. Gist verður á Edduhóteli og þar verður einnig snæddur kvöldmatur. Seinni daginn verður farið út í Hrísey, er það um 15 mínútna sigling frá Árskógsströnd. Í Hrísey fær hópurinn hressingu; súpu,brauð og kaffi. Síðan verður farið í skoðunarferð um eyna á dráttavélum og vögnum. Á heimleiðinni verður farið um Dalvík, Ólafsfjörð og Lágheiði. Endar ferðin svo með kvöldverði á Gauksmýri. Ferðanefnd félagsins  er mjög vel virk, en í henni eru Sigurður Sigurðsson, Guðrún Sigmundsdóttir og Ólafur Valdimarsson.

 

En fleira er að gerast hjá félaginu:
Sönghópur eldri borgara telur um 14 manns og æfir hann nær vikulega undir stjórn Helga S. Ólafssonar. 
Á mánudögum og fimmtudögum sér Stella Bára Guðbjörnsdóttir um föndrið. 
Á miðvikudögum koma  nokkrir eldri borgarar saman í Nestúni til að spila, spjalla og fá sér kaffisopa.

 

Fimmtudaginn 28. janúar verður þorrablót eldri borgara haldið í Nestúni og mun Jónína Jóhannesdóttir sjá um matinn eins og á undanförnum þorrablótum. Benni í Krossanesi og Bjössi á Borg munu sjá um dansmúsíkina, eins og vanalega á blótum félagsins. Um skemmtiatriði og annað í sambandi við þorrablótið sér þorrablótsnefndin ásamt ýmsum félögum eldri borgara. Formaður félagsins er Sigurbjörg María Guðmannsdóttir.

 
< Fyrri   Næsti >

Leit

 

Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það   
 
  
 

Dagatal

september 2010
þrmifilasu
0102030405
06070809101112
13141516171819
20212223242526
27282930
Play casino online games