|
Hvaða lið ber sigur úr býtum í Spurningakeppni fyrirtækjanna í kvöld? |
|
|
föstudagur, 22 janúar 2010 |
 Þá er komið að sjálfu úrslitakvöldinu í Spurningakeppni fyrirtækjanna. Eins og flestum er kannski kunnugt þá eru það lið Leikskólans Ásgarðs og lið Fæðingarorlofssjóðs sem munu keppa til sigurs. Lið Leikskólans Ágarðs í kvöld skipa Gunnhildur Vilhjálmsdóttir, Helga Hinriksdóttir og Sigurbjörg Þórunn Marteinsdóttir. Lið Fæðingarorlofssjóðs skipa Anna María Elíasdóttir, Gunnar Sveinsson og Pálmi Óskarsson. Örlítið breytt tímasetning frá því sem hefur verið, því nú hefst keppnin kl. 21:00 á Cafe Sírop.
|