|
Sr. Magnús settur inn í embætti |
|
|
laugardagur, 23 janúar 2010 |
|
Innsetningarguðsþjónusta verður í Hvammstangakirkju sunnudaginn 24. janúar kl. 14:00. Þar mun sr. Dalla Þórðardóttir, prófastur Húnavatns- og Skagafjarðarprófastsdæmis, setja sr. Magnús Magnússon inn í embætti sóknarprests Breiðabólstaðarprestakalls. Kaffiveitingar í safnaðarheimili, í boði kirkjukórs og sóknarnefndar, að stundinni lokinni.
|