Norðanátt.is

Senda efni

Viltu senda okkur efni á vefinn? Pistil, kveðju, viðtal, myndir...
Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það
 
  
Sparisjóðurinn Hvammstanga
Upplýsingar um miðasölu á þorrablót á Hvammstanga Rafpóstur
miðvikudagur, 27 janúar 2010
Þorrablótið verður haldið í Félagsheimilinu Hvammstanga laugardaginn 6. febrúar og hefst kl. 20:30. Húsið opnar kl. 20:00

Miðasala hefst mánudaginn 1. febrúar kl. 21:00, húsið opnað 19:15,
í Félagsheimlinu Hvammstanga, inngangur að sunnan undir svölunum.


Fyrirkomulag í biðsal:
Við innganginn þá skrifa allir sem koma inn nafn sitt á blað, afgreiðsluröð á miðum fer eftir þessu blaði.
Fari viðkomandi út strikast nafnið hans af blaðinu. Einungis þeir sem hafa aldur til fá afgreidda miða.
Við kaup á miðum er einn afgreiddur í einu og greiðir með einni greiðslu, peningum, ávísun eða kreditkorti.

Boðið verður uppá kaffi, spil, og töfl til að stytta tímann í biðsalnum, góð upphitun fyrir gott þorrablót.
 
Eftir það verða miðar til sölu hjá: Hrólfi í Byggingarvörudeild KVH
Miðar verða seldir í sæti á borðhaldi, ekki í sæti á dansleik – Takmarkaður fjöldi miða –
Hægt verður að greiða með peningum, ávísun eða VISA/EURO kreditkortum, ekki debetkortum.
 
Aðgangseyrir kr. 6.500, innifalið er ávísun á tvo drykki eins og verið hefur.
Skemmtilega dagskrá að vanda – ÚLFARNIR  - sér um danstónlistina
 
Sparisjóðurinn Hvammstanga – Aðalstyrktaraðili Umf. Kormáks
 
 
 
< Fyrri   Næsti >

Leit

 

Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það   
 
  
 

Dagatal

september 2010
þrmifilasu
0102030405
06070809101112
13141516171819
20212223242526
27282930
Play casino online games