|
Kjöthornið hefur markaðssókn á Norðurlandi vestra |
|
|
fimmtudagur, 28 janúar 2010 |
|
Kjöthornið er eitt þeirra fyrirtækja sem eru í sókn í Húnaþingi vestra. Mjög mikið var að gera í nóvember og desember í úrbeiningum, svo mikið að ráða þurfti starfskraft til að anna eftirspurninni. Ekki bar á öðru en að viðskiptavinir væru ánægðir með þjónustuna, frágang og annað.
Nýverði hóf Kjöthornið að vera með umboð fyrir vörur frá Gæðakokkum í Borgarnesi. Þeir sérhæfa sig í vörum fyrir mötuneyti, svosem eins og hakkabuffi hverskonar, bökum, forsteiktum bollum og þess háttar. Með þessu móti getur Kjöthornið þjónustað stóreldhús og séð þeim fyrir stórum hluta af þeim vörum sem þar eru notaðar. Gæðakokkar gefa út nýtt mánaðartilboð í hverjum mánuði og mun Kjöthornið einnig gera hið sama. "Áfram mun ég svo þjónusta viðskiptavini með úrbeiningum, kryddun og söltun, svo eru það fermingar og aðrar matarveislur, um að gera að fá kjöt í þær í Kjöthorninu, eða láta okkur um að meðhöndla kjöt sem viðskiptavinurinn kemur með" segir Guðmundur Helgason framkvæmdastjóri Kjöthornsins.
Svo er aldrei að vita nema Kjöthornið verði með opið kjötborð af og til, það hefur nú verið prófað tvisvar og gefið góða raun. Þá hefur verið notast við kæliborðið í Kaupfélaginu á Hvammstanga. Verðlista Kjöthornsins má skoða hér.
|