Norðanátt.is

Senda efni

Viltu senda okkur efni á vefinn? Pistil, kveðju, viðtal, myndir...
Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það
 
  
Sparisjóðurinn Hvammstanga
Tákn með tali tekið upp á Ásgarði Rafpóstur
föstudagur, 29 janúar 2010

Ákveðið hefur verið að fara af stað með TMT, eða tákn með tali á leikskólanum Ásgarði. 

Hvað er TMT ? TMT eða Tákn með tali er tjáningarform, ætlað heyrandi fólki sem á við mál-og eða talörðuleika að stríða. Árið 1968 hófu Danir tilraunir með að nota tákn með tali við kennslu barna með þroskafrávik.TMT byggist á samblandi af látbrögðum, táknum og tali. 

Með látbrögðum er átt við látbragð og svipbrigði sem yfirleitt er sýnd um leið og táknin eru gerð og undirstrika þannig merkingu þeirra. Tal okkar er huglægt en táknin eru hlutlæg og því auðveldara fyrir barnið að skilja við hvað er átt. Með því að nota TMT virkjum við sjónskynið sem er oft áhrifameira en heyrnarskynið. Talið er gert sýnilegt. TMT og táknmál er ekki það sama. Táknmál heyrnalausra er þeirra móðurmál með eigin málfræði og setningauppbyggingu. Ef við notum TMT hægir það á tali okkar og börn skilja aðra betur og þeirra tjáning er skiljanlegri. Setningar verða styttri og hnitmiðaðri. Taltaktur ýtir undir myndun málhljóða og skýrari framburð. Gerð tákna tekur mið af taltakti þannig að öll atkvæði komast til skila. Börn nota aðeins tákn með tali við þá sem nota tákn með tali við þau. Táknin á alltaf að nota með tali, aldrei ein og sér. Með því að nota tákn með tali erum við að búa til boðskiptaleið. Boðskipti aukast og þar af leiðandi lífsgæði einstaklingsins.

Heimild: Ásgarður  

 
< Fyrri   Næsti >

Leit

 

Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það   
 
  
 

Dagatal

september 2010
þrmifilasu
0102030405
06070809101112
13141516171819
20212223242526
27282930
Play casino online games