Norðanátt.is

Senda efni

Viltu senda okkur efni á vefinn? Pistil, kveðju, viðtal, myndir...
Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það
 
  
Sparisjóðurinn Hvammstanga
Netsölukerfi Icelandbooking.is fyrir Norðurland vestra Rafpóstur
laugardagur, 30 janúar 2010
Síðastliðið ár hefur vinnuhópur og starfsmaður á vegum Félags ferðaþjónustunnar í Skagafirði unnið að því að auka sölutækifæri í ferðaþjónustu á Norðurlandi vestra. Niðurstaða þeirrar vinnu liggur nú fyrir og verður kynnt á fundum miðvikudaginn 3. febrúar.
 
Ákveðið hefur verið að stofna einkahlutafélag um rekstur netsölukerfisins Icelandbooking.is og stendur öllum ferðaþjónustufyrirtækjum á svæðinu til boða að selja vörur sínar þar, og/eða gerast hluthafar. Góður söluvefur er hagkvæmasta og ódýrasta markaðstækið sem völ er á í dag, bæði til að auka sölu á stærri markaði og draga úr kostnaði.
 

Sem dæmi um vel heppnaða söluvefi sem byggja á sama kerfi og Icelandbooking.is mun gera, má benda á vef Reykjavík Excursions, www.re.is, þar sem sala hefur margfaldast síðan hann var tekinn í gagnið. Hlutafjársöfnun er þegar farin af stað og verkefnið er auk þess styrkt af Vaxtarsamningi Norðurlands vestra.  
 
Áætlað er að vefur Icelandbooking opni í mars/apríl.
 
Kynningarfundirnir verða á eftifarandi stöðum miðvikudaginn 3. febrúar.
•         Kl. 09:30 – Hótel Varmahlíð
•         Kl. 13:30 – Hótel Blönduós
•         Kl. 16:30 – Sveitasetrið Gauksmýri
Fyrir hönd vinnuhóps um Icelandbooking,
Jón Þór Bjarnason, verkefnisstjóri

 
< Fyrri   Næsti >

Leit

 

Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það   
 
  
 

Dagatal

september 2010
þrmifilasu
0102030405
06070809101112
13141516171819
20212223242526
27282930
Play casino online games