|
Háskólasetrið á Blönduósi skipuleggur málþing Miðvikudaginn 10. febrúar kl. 17-19.30 verður haldið málþing um hafís og strandmenningu á Pottinum og pönnunni á Blönduósi. Áhugaverð erindi verða flutt um málefni sem okkur eru ofarlega í huga núna á tímum loftslagsbreytinga og tíðra heimsókna ísbjarna til landsins. Meðal fyrirlesara eru alþjóðlega virtir erlendir og íslenskir fræðimenn. Ljóst er að á málþinginu gefst fólki kostur á að fræðast um ýmsar hliðar viðfangsefnisins frá mismunandi sjónarhornum.
DAGSKRÁ Stutt kynning á Háskólasetri Háskólans á Hólum á Blönduósi
Fulltrúi stjórnar og Ester Helgadóttir sérfræðingur við Háskólasetrið Island 1830-1999: climate, paleoclimate and sea ice Jean-Luc Mercier, prófessor við Háskólann í Strasbourg, Frakklandi Hafíssaga síðustu tíu þúsund ára Ólafur Ingólfsson prófessor við Háskóla Íslands Hafís og siglingar Þór Jakobsson veðurfræðingur Kaffihlé Útbreiðsla og áhrif hafíss fyrr á öldum Astrid Ogilvie prófessor við Institute of Arctic and Alpine Research í Boulder, Colorado Rauntímaeftirlit með hafís við Ísland Ingibjörg Jónsdóttir dósent við Háskóla Íslands Heimsóknir hvítabjarna á Íslandi á síðastliðnum árum Þorsteinn Sæmundsson forstöðumaður Náttúrustofu Norðurlands vestra Umræður
Skúli Skúlason rektor Háskólans á Hólum verður fundarstjóri.
|