Norðanátt.is

Senda efni

Viltu senda okkur efni á vefinn? Pistil, kveðju, viðtal, myndir...
Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það
 
  
Sparisjóðurinn Hvammstanga
Öskudagurinn í Ásgarði Rafpóstur
fimmtudagur, 18 febrúar 2010
Kötturinn sleginn úr tunnunni
Kötturinn sleginn úr tunnunni
Öskudagurinn vekur oft mikla kátínu, sér í lagi hjá yngra fólkinu. Það er oft á tíðum spennt að fá að klæða sig upp og rölta syngjandi um bæinn í þeirri von að fá ef til vill eitthvað að launum.
 
Í dag hélt Leikskólinn Ásgarður daginn hátíðlegan og mátti sjá bæði börn og starfsfólk í hinum ýmsu dulargervum bregða fyrir.

Ísinn borðaður með bestu lyst
Ísinn borðaður með bestu lyst
Dagskrá Öskudagsins á Ásgarði er eilítið frábrugðin hinni hefðbundnu dagskrá. Guligarður Víðihlíð fór í rútuferð til Hvammstanga til að halda daginn hátíðlegan í Ásgarði, en þar var skemmtun og ball fyrir hádegi. Í upphafi skemmtunarinnar er sest í hring og fá alir tækifæri til að slá köttinn úr tunnunni, en inní sjálfri tunnunni er leikfangaköttur og í þetta sinnið pez sem foreldrafélagið gaf og allir fengu. Síðan er tekið við að dansa og er þá bæði frjáls dans og skipulagður, eins og Supermann, Hókí, pókí, Fyrst á réttunni svo á röngunni og Höfuð herðar hné og tær, svo eitthvað sé nefnt. Eftir að börnin höfðu lokið við hádegisverðinn þá fengu allir íspinna sem Fæðingarorlofssjóður gaf til. 
 
Nemendur í ýmsum gervum
Nemendur í ýmsum gervum
Aðspurð segist Guðrún Lára Magnúsdóttir, leikskólastjóri, ekki geta merkt hver vinsælasti búningurinn í ár sé. Stelpurnar hafa margar hverjar valið litaglaða prinsessukjóla með vængjum en svo má t.d. einnig sjá kanínur, Mjallhvít og Sollu stirðu. Einnig er mikill fjölbreytileiki hjá piltunum, allt frá skjaldböku, blettatígrum, sjóræningjum til kúreka. 
 
Guðrún segist ekki finna mikinn mun á þessum degi hjá Ásgarði milli ára. Hún segist þó sjálf merkja mun frá sinni æsku, ”Ég var í búning, saumaði öskupoka, seldi merki fyrir Rauða krossinn og safnaði öskupokum og hengdi á aðra. Það var mjög spennandi hvort það tækist án þess að fólk yrði vart við. Ég kynntist því ekki að slá köttinn úr tunnunni, en nemendum finnst það skemmtilegur siður og það er um að gera að gera það sem þau gleðjast yfir.
 
< Fyrri   Næsti >

Leit

 

Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það   
 
  
 

Dagatal

september 2010
þrmifilasu
0102030405
06070809101112
13141516171819
20212223242526
27282930
Play casino online games