 afmælisbarnið Ný afstaðið er 75 ára afmæli Bangsa, Björns Þ. Sigurðssonar, en það var 18. febrúar sl. Sá siður hefur haldist í tugi ára að vinir hans heimsæki hann og gleðjist með honum á afmælisdaginn. Af því tilefni er vert að rifja upp afmælisdag í Nausti fyrir tæpum 30 árum.
 Bangsi hefur undanfarna daga undirbúið afmælisveisluna, nóg er til að rifnum harðfiski og öðru góðgæti. Hákarlsangan um húsið, allt eins og það á að vera. Hann er búinn að fara í kaupfélagið og kaupa margar flöskur af Sinalco og kók í gleri, líka Malta og Prinspóló. Fljótlega upp úr hádegi eða þegar skóladeginum lýkur birtast börnin í götunni og reyndar mörg fleiri. Þau koma með rassaköstum upp stigann og óska afmælisbarninu til hamingju með daginn og syngja afmælissönginn. Síðan hefjast leiksýningar, það eru sett upp allskonar leikrit. Æfingar eru óþarfar eða þarflitlar, bara leikið af fingrum fram. Kjólar hafa komið utan af bæjum og Bangsi á líka nóg af fötum sem hægt er að nota, þar á meðal bæði þennan fína náttslopp og Ulster-frakkann góða, auk annars. Á milli atriða og í atriðunum sjálfum er Sinalcoið og kókið drukkið og harðfiskur og sælgæti haft með. Sumir drengjanna komast upp í að drekka einar þrjár í rykk. Svo er hægt að slá í spil og þá er Hjónasængin afar vinsæl og af henni hljótast feikna hlátrasköll. Þannig líður dagurinn við glaum og gleði og þegar kemur fram um kvöldmat, þá halda flest þeirra heim. Sum neita reyndar að yfirgefa samkvæmið, en meginreglan er sú að það sé tímabært fyrir börnin að fara heim þegar karlarnir byrja að syngja. Um kvöldið mætir nefnilega fullorðna fólkið og þá eykst fjörið enn frekar. Það er dansað og sungið. Marserað og stiginn færeyskur dansur. Sumir dansa niður úr sokkunum, en það er allt í lagi því þetta er svo gaman. Svo er hægt að setjast niður og blása mæðinni í sr. Róberts-stólnum og oft er boðið upp á svaladrykk úr Skunda eða aðrar veigar. Sjálft afmælisbarnið tekur þessu öllu með stóískri ró og hefur af hina mestu skemmtan, enda höfðingi heim að sækja. Gleðin stendur oftast framyfir miðnætti og örugglega eru margir gestanna byrjaðir að hlakka til næsta afmælisdags þegar þeir halda heim á leið. Fleiri myndir frá afmælinu fyrir tæpum 30 árum síðan má skoða hér .
|