Norðanátt.is

Senda efni

Viltu senda okkur efni á vefinn? Pistil, kveðju, viðtal, myndir...
Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það
 
  
Sparisjóðurinn Hvammstanga
Alþjóðlegur bænadagur kvenna Rafpóstur
miðvikudagur, 10 mars 2010
“Allt sem andardrátt hefur, lofi Drottin”  Þann 5. mars var alþjóðlegur bænadagur kvenna haldinn hátíðlegur á Melstað í Miðfirði í fimmta sinn.  



Að þessu sinni var beðið fyrir konum í Kamerún í Afríku.  Myndir, tónlist og texti kom frá konum í Kamerún sem á landamæri að sex löndum og er ýmist talið til Vestur-Afríku eða Mið-Afríku.  Landið er á stærð við Svíþjóð.  Yfirskriftin er tekin úr Sálm 150 - að allt sem andardrátt hafi skuli lofa Drottinn.  Þannig vilja konurnar frá Kamerún benda á tilgang lífsins, sem er að við hlúum hvert að öðru í stað þess að notfæra okkur aðrar manneskjur.

Henrike Wappler hefur haft yfirumsjón með bænadegi kvenna í Húnaþingi vestra og Bæjarhrepp.  Hún kemur frá Þýskalandi og kynntist þar bænadegi kvenna.  Hann var fastur liður í safnaðarstarfi í heimabæ hennar.

Á bænadaginn mættu 18 konur og 2 prestar,  þeir Magnús Magnússon og Guðni Þór Ólafsson.  Alls söfnuðust 9.001 kr fyrir Hið íslenska Bíbíufélag.

Hátíðin fór þannig fram að konur skiptust á að lesa texta; kynningu á landinu, bænir og ákall og Kristín Árnadóttir djákn las ritningarlestur. Á milli var sungið og flutt tónlist frá Kamerún.  Að hátíð lokinni í kirkju var gengið yfir í safnaðarheimili þar sem gestir gæddu sér á veitingum sem konur höfðu komið með og rekja má til landsins á einn eða annan hátt.  Þá var flutt tónlist og sýndar myndir frá landinu. 
  
Gestir fengu með sér gjöf, ljósaskerm til minningar.
Á næsta ári kemur efnið frá Chile og verður bænadagurinn þann 4. mars 2011 sem er fyrsti  föstudagur í mars.
 
     
     
 
 
< Fyrri   Næsti >

Leit

 

Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það   
 
  
 

Dagatal

september 2010
þrmifilasu
0102030405
06070809101112
13141516171819
20212223242526
27282930
Play casino online games