|
Nú á dögunum forvitnaðist Norðanátt aðeins um Skúla Þórðarson. Skúli gegnir stöðu sveitarstjóra í Húnaþingi vestra og býr á Hvammstanga ásamt konu sinni Sigurbjörgu Friðriksdóttur og fjölskyldu.
 Skúli Þórðarson Uppáhalds bók:
Í augnablikinu er það Saga Hvammstanga.
Uppáhalds matur:
Íslensk villibráð sem ég hef veitt sjálfur og Sigurbjörg matreitt.
Uppáhalds drykkur:
Íslenskt blávatn.
Uppáhalds bíómynd:
Engin sérstök. Horfi ekki mikið á kvikmyndir.
Uppáhalds sjónvarpsefni:
Fréttir, veður og Kiljan.
Uppáhalds tónlistarmaður:
Það eru að sjálfsögðu vinir mínir Raggi Kalli og Geir.
Hvað vinnst þér skemmtilegast að gera?
Að gleðjast og ferðast með fjölskyldu og góðum vinum.
Hvað finnst þér leiðinlegast að gera?
Mér hundleiðist að bíða eftir fólki.
Besti tími ársins:
Vorið, þegar gróður kviknar og farfuglarnir koma. einnig síðsumar og haust með skemmtilegum veiðiferðum.
Draumafríið:
Ferðalag innanlands með fjölskyldu og góðum vinum.
Lífsmottó:
Ég á mér ekkert sérstakt lífsmottó en mörg almenn gildi sem ég rækta í samskiptum við menn og dýr og náttúru.
Hvað er það fyrsta sem þér dettur í hug þegar þú heyrir orðin...
....heimaslóðir? - Húnaþing
....hamingja? - Heill og góð heilsa fjölskyldunnar.
....hattur? - Veiðihúfan mín. Gömul, ljót og slitin en algerlega ómissandi.
|