|
|
|
|
Ferðamaðurinn í Húnaþingi vestra
Húnaþing vestra býður uppá marga
skemmtilega möguleika fyrir ferðamanninn. Hér er aragrúi af stöðum sem vert er
að gefa gaum. Það er hægt að fara á söguslóðir Grettis, skoða seli meðfram
ströndinni, líta á Hvítserk, fara í hestaferðir, skella sér ofaní náttúrulegt
bað, skoða söfn og fleira. Þá getur ferðamaðurinn valið á milli gistimöguleika
þar sem hér er að finna tjaldstæði, bændagistingu, sumarhús, gistiheimili og hótel.
Veitingastaðir, matvöruverslanir og söluskálar svæðisins sjá svo til þess að
ferðamanninn þyrsti hvorki né svengir.
|
|
|
|
|