Norðanátt.is
Sparisjóðurinn Hvammstanga

Vaxtarsamningur Norðurlands vestra


Markmið vaxtarsamningsins:

Að efla atvinnulíf og byggðaþróun á Norðurlandi vestra með því að byggja á þeim styrkleikum sem svæðið býr yfir til frekari vaxtar.

Leiðir:
Efling nýsköpunar og vaxtar fyrirtækja og stofnana á svæðinu í gegnum klasasamstarf, með áherslu á tvö svið:

  •    Menntun og rannsóknir þar sem áhersla verður m.a. lögð á auðlindalíftækni og uppbyggingu þekkingarsetra sem þjóna muni öllu svæðinu.
  •      Menning og ferðaþjónusta.

Samningurinn er til þriggja ára og er iðnaðarráðuneytið  skuldbundið til að greiða árlega 30 milljónir króna til verkefnisins, og þannig samtals kr. 90 milljónir á samningstímanum.

Samningnum fylgir viðaukasamningur  fyrirtækja og stofnana um aðkomu að verkefninu, í formi fjármagns, sérfræðivinnu eða aðstöðu. 17  fyrirtæki og stofnanir eru aðilar að samningnum og nema framlög þeirra samtals um 56,4 milljónum króna á samningstímanum. Lista yfir samstarfsaðila er að finna hér eða í yfirlitinu til vinstri.
 
Framkvæmdastjóri Vaxtarsamnings Norðurlands  vestra er Hjördís Gísladóttir.
Skrifstofa Vaxtarsamnings Norðurlands vestra er í Verinu - vísindagörðum, Háeyri 1, 550 Sauðárkróki.



 
Lesa má meira um samninginn á heimasíðu SSNV
Verið- vísindagörðum
Háeyri 1 Sauðárkrókur
Netfang: hjordis.gisladottir@ssnv.is
Sími: 455 7931 / 893 8287
Vefsíða
  

Play casino online games