Norðanátt.is
Sparisjóðurinn Hvammstanga
Íslenska Landnámshænan að Tjörn á Vatnsnesi.

Íslenska Landnámshænan að Tjörn á Vatnsnesi.


Að Tjörn á Vatnsnesi er stærsta bú með íslensku Landnámshænuna hér á landi og telur stofninn 150 hænur og 25 hana. Hænsnahópurinn er mjög litskrúðugur og margir litir til hér á bænum, bæði einlitir og marglitir fuglar og með margar gerðir af kömbum.

Fyrir þá sem illa eða ekki þekkja til er Vatnsnesið á Norðvesturlandi og telst til Húnaþings-Vestra. Hvammstangi er næsti þéttbýlisstaður og stendur má segja syðst á nesinu. Þegar farið er að Tjörn er ekið í gegnum Hvammstanga og um 32 km norður eftir Vatnsnesinu. Tjörn stendur nærri nyrst á nesinu en Hindisvík er  norðar og þar er mikið fuglalíf og eitt stærsta selalátur á norðurlandi.

Mikil náttúrufegurð er á Vatnsnesinu og margir áhugaverðir staðir. Hægt er að aka hring í kringum nesið. Tjörn er kirkjustaður og þar stendur Tjarnarkirkja en í kirkjugarðinum  er einmitt leiði Agnesar og Friðriks er hálshöggvin voru í síðustu aftöku á Íslandi árið 1830. Kunn er sagan af þeim hjúum og hvað um þau varð.

Snemma vors er sett í útungunarvélarnar og koma fyrstu ungarnir í apríl/maí. Sala fer þá af stað og stendur hún yfir fram eftir árinu eða á meðan eitthvað er til af ungum eða kjúklingum. Útungun heldur svo áfram fram eftir sumrinu til að nóg sé af ungum. Gott er þó að panta með góðum fyrirvara.

Ungar eru seldir frá því að vera daggamlir og alveg uppí unghænur í varpi.  Einnig eru seld egg til útungunar og  til matar til þeirra sem það vilja. Ungar eru kyngreindir um 6-8 vikna gamlir og er borin ábyrgð á þeim  sem seldir eru sem hænur eftir það,ekki fyrr.

Margt hefur verið unnið að frá því sl.vetur til að auka kynningu á Landnámshænunni okkar og hefja hana meira til vegs og virðingar. Gefinn var út kynnngarbæklingur um Landnámshænuna og er hann sá eini og fyrsti sinnar tegundar sem gefinn hefur verið út hér á landi. Bæklingurinn fæst á ýmsum upplýsingamiðstöðvum og í söluskálum um landið.

Meðal annars eru nú kominn út póstkort með fallegum myndum af hænum, hönum og ungum alls um 30 mismunandi myndir. Einnig eru komin barmmerki með lógói ræktunarinnar á Tjörn, ísskápsseglar með upplýsingum, ísskápsseglar með dagatali, dagatal (kubbur)með fallegri mynd af Landnámshænu og hana og þá eru að koma bolir með merki ræktunarinnar á Tjörn. Allt þetta er selt á vægu verði sem rennur beint til stuðnings til áframhaldandi útgáfu á þessum auglýsingum og upplýsingum um  Landnámshænuna.

Og nú hefur búið á Tjörn eignast sín eigin sýningarbúr en þau búr voru pöntuð frá Bretlandi og eru eingöngu ætluð til sýningar á hænsfuglum. Hvert búr tekur 3 fugla og auðvelt er að flytja þau. 

Þetta gerir það að verkum að nú er hægt að panta með fyrirvara sýningu á Landnámshænunni ef eitthvað er um að vera í héraðinu eða nágranna héruðunum til að auka fjölbreytnina og ætti það að geta skapað skemmtun og fróðleik fyrir unga sem aldna.

Þar sem Tjörn er kirkjustaður eins og áður sagði þá kemur hingað mikill fjöldi að ferðamönnum, bæði erlendum og innlendum til að skoða kirkjuna og kirkjugarðinn. Mjög margir sjá fuglana úti við og banka uppá og spyrja hvort þeir megi skoða þá og hefur því verið tekin sú ákvörðun að “opna heim” og sýna fuglana og það sem þar fer fram . Hægt er að sjá hvernig fuglarnir búa, hvernig þeim er gefið, skoða egg, sjá unga og kjúklinga á ýmsum aldri og jafnvel sjá unga skríða úr eggjum ef þannig  hittir á þegar fólk er á ferðinni.

Búið verður sýnt undir leiðsögn eiganda og mun hann fræða fólk um fuglana og svara spurningum ef einhverjar verða. Skoðunin kostar 500 kr fyrir 12 ára og eldri. Gjaldið verður svo notað til áframhaldandi útgáfu á kynnigarefni fyrir Landnámshænuna. Vegna þessa verða sett upp auglýsingarskilti, annað við Þjóðveg 1 og hitt hér fyrir neðan tún á Tjörn þar sem fólk getur séð að þetta er í boði.

Endilega hafið samband ef það er eitthvað sem þið viljið vita.


Með kveðju
Júlíus Már Baldursson
 



Tjörn I
531 Hvammstangi
Netfang: tjorneitt@simnet.is & juliusb@simnet.is
Sími: 451 2271 & 861 3348
Vefsíða
  

Play casino online games