Norðanátt.is
Sparisjóðurinn Hvammstanga
Golfklúbburinn Hvammur, Hvammstanga

Golfklúbburinn Hvammur, Hvammstanga



Eitt af markmiðum Golfklúbbsins Hvamms á Hvammstanga er að koma upp golfvelli. Golfvöllurinn verður staðsettur í Hvamminum fyrir ofan Hvammstanga.

Félagar í Golfklúbbnum , sem eru um 50 talsins, fengu til sín framkvæmdarstjóra Golfsambandsins og golfvallarhönnuð sem könnuðu þau fjölmörgu  svæði sem klúbbnum hafði verið bent á í Húnaþingi vestra. Fyrir valinu varð Hvammurinn en sá staður var valinn með tilliti til nálægðar við þéttbýlið, önnur íþróttasvæði, tjaldsvæðið og frábærra möguleika á að búa til skemmtilegan völl, sem verður löglegur 9 holu völlur.

Reiknað er með að völlurinn verði tilbúinn síðsumars 2010 og kominn í fulla notkun árið 2011 en það fer eftir því hvernig gengur að fjármagna verkefnið.

Formaður klúbbsins er Gunnar Sveinsson.


Hvammurinn
530 Hvammstangi
  

Play casino online games