Norðanátt.is
Sparisjóðurinn Hvammstanga
Laugarbakkinn

Laugarbakkinn


verkefni um framtíðarnýtingu skólahúsnæðis Laugarbakka

laugarbakkimynd.gifLaugarbakkaskóli í vetrarbúningi

Í lok 2007 var einkahlutafélagið Reykjahöfði stofnað í þeim tilgangi að finna og vinna viðskiptahugmyndir fyrir skólahúsnæðið á Laugarbakka, Nú fer þar fram kennsla efri bekkja grunnskóla Húnaþings vestra, en gert er ráð fyrir því að innan fárra ára flytjist grunnskólinn allur til Hvammstanga. Mikilvægt er að samhliða sé unnið að því að finna annað hlutverk fyrir skólahúsnæðið á Laugarbakka, þ.e. kennsluhúsnæði, heimavist, íþróttahús og íbúðir.

Að verkefninu standa sveitarfélagið Húnaþing vestra, Sparisjóður Húnaþings og Stranda og fjárfestingabankinn Saga Capital.

Um landið þvert og endilangt má finna skólahúsnæði sem hefur ekki lengur hlutverk. Það vilja stjórnvöld og íbúar í Húnaþingi vestra koma í veg fyrir að gerist á Laugarbakka. Húsnæðið er í góðu ástandi og býður upp á alls kyns möguleika varðandi nýtingu og sama er að segja um staðsetninguna. Laugarbakki er í alfaraleið, miðja vegu milli tveggja stærstu þéttbýliskjarna Íslands. Húnaþing vestra býr yfir náttúrufegurð, dýralífi og mannlífi sem vegfarandi á hraðferð lætur of oft fram hjá sér fara. Miðfjörður, Vatnsnesið, Arnarvatnsheiðin, Hópið og Víðidalur eru allt of vel faldar perlur. Saga svæðisins er rík og heillandi og spannar allt frá grimmilegum átökum Grettissögu, til harmleikja Vatnsenda-Rósu og Natans Ketilssonar. Hér á Flateyjarbók rætur sínar og svæðið er sögusvið ótal Íslendingasagna. 

Ferðaþjónusta í Húnaþingi vestra er í miklum blóma, þar er víða boðið upp á glæsilega aðstöðu til gistingar allt frá tjaldstæðum og upp í herbergi sem eru sambærileg við bestu hótel. Ferðafólk getur skemmt sér við sela- og fuglaskoðun, kynnt sér fagurt handverk eða stundað kappleiki að hætti víkinga. Hér má upplifa rómantísk kvöld við kertaljós og vísur Vatnsenda-Rósu, Fjöruhlaðborð, stangveiðiferðir og hestaferðir um fjöll og firnindi. Sauðfjárrækt, hrossarækt og annar landbúnaður stendur sterkt á svæðinu. Á Hvammstanga er boðið upp á flesta þá þjónustu sem einu samfélagi er nauðsynleg og þar er stórhuga og skapandi fólk í framleiðslu og þjónustu. Þó er það svo að í Húnaþingi vestra, eins og víðar um hinar dreifðari byggðir, er brýn þörf fyrir ný og spennandi atvinnutækifæri.
Nú hefur verið hafist handa við að safna og vinna úr hugmyndum um starfsemi sem gæti hleypt nýju blóði í atvinnulífið, styrkt enn frekar það sem fyrir er á svæðinu og farið vel í húsnæði Laugarbakkaskóla. Þær hugmyndir sem fram hafa komið nú þegar, má í grófum dráttum flokka þannig:

1.    Heilsutengd þjónusta og/eða endurhæfing
2.    Menntun, fræði og menning
3.    Íþróttir - afþreying
4.    Ferðaþjónusta
5.    Annað
a.    Íbúðir
b.    Verslunar- og þjónustumiðstöð
c.    Aðstaða fyrir smáiðnað og/eða sprotafyrirtæki

Margar hugmyndanna eiga heima í fleiri en einum flokki, þannig eru hugmyndir um menningar- og heilsutengda ferðaþjónustu, íþróttaskóla o.fl.  Sumarið 2008 verður unnið úr hugmyndunum, nokkrar valdar úr, útfærðar og gerðir vísar að viðskiptaáætlunum. Við þá vinnu verður leitað eftir aðstoð frá nemendum í háskólum, m.a. Bifröst og HA. Áhersla er lögð á að hafa sem mest samráð við heimafólk og styrkja þannig þá atvinnustarfsemi sem fyrir er á svæðinu um leið og leitað er fanga víðar að.

Í júlí verða kallaðir til hugmyndaríkir og skapandi frumkvöðlar innan héraðs og utan til hugarflugs- og vinnufundar þar sem hugmyndir fá að fljúga og verða útfærðar nánar. Áætlað er að velja tvær til þrjár hugmyndir til nánari útfærslu og athugunar haustið 2008 og stefnt að því að haustið 2009 verði búið að finna framtíðarhlutverk fyrir húsnæði Laugarbakkaskóla.
 

Valgerður H. Bjarnadóttir er verkefnisstýra. Hægt er að hafa samband við hana í síma 895 3319 eða með tölvupósti á netfangið: valgerdur@vanadis.is

 

 

Laugarbakki
531 Hvammstangi
Netfang: valgerdur@vanadis.is
Sími: 895 3319
  

Play casino online games