|
|
|

Stéttarfélagið Samstaða |
 |
|
Stéttarfélagið Samstaða var stofnað 22. Júní 1997. Að stofnuninni stóðu 4 verkalýðsfélög í Húnavatnssýslum. Það voru Verkalýðsfélag Austur- Húnvetninga, Verkalýðsfélagið Hvöt á Hvammstanga, Verkalýðs- og sjómannafélag Skagastrandar og Verslunarmannafélag Húnvetninga.
Meginmarkmið félagsins eru að vera bakhjarl félagsmanna sinna, vinna að bættum kjörum þeirra, með kjarasamningagerð og veita þeim sem besta þjónustu, Félagið hefur innan sinna vébanda auk félagssjóðs, sjúkrasjóð, orlofssjóð,vinnudeilusjóð og fræðslusjóð. Félagið á orlofshús á Illugastöðum í Fnjóskadal og einnig á það hús í Ölfusborgum á móti Öldunni- stéttarfélagi í Skagafirði. Þá á félagið 2 íbúðir í Reykjavík sem eru leigðar félagsmönnum á hagstæðum kjörum. Félagið er aðili að Stapa –lífeyrissjóði sem er einn af öflugustu lífeyrissjóðum landsins, og ýmsum fræðslusjóðum.Þá er það aðili að Farskólanum , miðstöð símenntunar á Norðurlandi vestra.
Höfuðstöðvar Stéttarfélagsins Samstöðu eru að Þverbraut 1 Blönduósi, s. 4524932 .Þá er skrifstofa að Klapparstíg 4 á Hvammstanga, s. 4512730.
Formaður félagsins er Ásgerður Pálsdóttir. Aðrir í stjórn eru: Guðrún A. Matthíasdóttir,Stefanía Garðarsdóttir, Eiríkur Pálsson,Gígja Óskarsdóttir,Guðmundur Finnbogason,Guðbjörg Þorleifsdóttir,Páll Marteinsson og Sigríður Guðmundsdóttir.
Klapparstígur 4
530
Hvammstangi
Sími: 451 2370
Vefsíða
|
|
|