Kynningarfundur Vaxtarrýmis

Norðanátt stóð fyrir kynningarfundi um viðskiptahraðalinn Vaxtarrými mánudaginn 12. september síðastliðinn.

Um er að ræða átta vikna viðskiptahraðal fyrir sprotafyrirtæki, frumkvöðla og nýsköpunarverkefni innan rótgróinna fyrirtækja. Hraðallinn fer fram að mestu leyti á netinu ásamt fjórum vinnustofum á völdum stöðum á Norðurlandi.

Umsóknarfrestur í hraðalinn er til mánudagsins 19. september kl. 23:59.

Við hvetjum einstaklinga og fyrirtæki á Norðurlandi til að sækja um. Um er að ræða einstakt tækifæri til að vaxa með vindinn í bakið.

Tekið er við umsóknum hér.

Hér má sjá upptöku af kynningarfundinum:

Previous
Previous

Nýsköpunarviðburður í Háskólanum á Akureyri

Next
Next

Verkefnastjóri Norðanáttar í föstudagsþættinum