Myndaveisla frá nýsköpunarviðburð Norðanáttar í HA
Föstudaginn 23. september síðastliðinn hélt Norðanátt, í samstarfi við Háskólann á Akureyri og SHA, nýsköpunarviðburð í hátíðarsal háskólans. Um 40 manns sóttu viðburðinn sem var blandaður fræðslu, fjöri og tengslamyndun. Nemendur og aðrir gestir brugðu sér í frumkvöðlahlutverk undir leiðsögn Svövu Bjarkar hjá RATA, flutt voru erindi frá reyndum frumkvöðlum af svæðinu og víðar og voru teymi Vaxtarrýmis 2022 einnig tilkynnt. Tónlistarmaðurinn Mugison var sérstakur gestur og lokaði viðburðinum með ljúfum tónum.